Entry: yes sir! Tuesday, December 27, 2005



Snilldar jólum að ljúka hér í Odense, styttri en nokkru sinni þarsem að við hjúin erum bæði farin að læra eins og mofo´s... próf í janúar og svoleiðis sjitt. Búið að vera alveg dásamlegt þrátt fyrir að maður hafi auðvitað saknað þeirra á klakanum, en sonur minn hin síkáti hélt uppi rífandi stemmningu á aðfangadag og setti að öllum líkindum einhverskonar met í pappírstætingum og sennilega mesta mildi að enginn skaðaðist í átökunum.  Allt fór nú vel fram samt og ég er ekki frá því að ég hafi þyngst um nokkur grömm eftir þá heiftarlegu ofneyslu matvæla sem vill eiga sér stað á þessum tíma árs.

Ég er búinn að vera að hlusta á það sem mér fannst markverðast í tónlistinni á árinu og að sjálfsögðu verður settur upp, að hætti Rob Gordon, topp 10 listi yfir bestu plöturnar:

10.  Coldplay - x&y    mér er alveg sama hvað allir segja, þetta er barasta ljómandi plata hjá þeim.

9. Sigurrós - Takk     Bravó er það eina sem mér dettur í hug og jú, takk sjálfir bara.

8. Anthony & the Johnsons- I am a bird now    Snilldarband, snilldarplata

7. The White stripes- Get behind me satan      Þau eru bara góð, alltaf

6. Opeth - Ghost reveries    það allrabesta sem að svíar bjóða uppá

5. Mew -  ..and the glass handed kites     það besta sem að danir bjóða uppá

4. Kent - Du og jag döden    það næsta besta frá svíum, snillingar!

3. Death Cab for cutie - Plans    hrifin af þessu albúmi

2. Turing Brakes - Jackinabox    Þessi plata kemst sennilega samt ekki inná aðra svipaða lista þarsem að gagnrýnendur trössjuðu hana....en ég er fan nr.1!

1. Kate Bush - Aeriel     óvæntasta og þægilegasta uppákoma ársins

Langar líka að setja System of a down í heiðurssæti með Mesmerize plötuna, it´s just so darn good...... 

   3 comments

Aldísin..
January 20, 2006   01:13 PM PST
 
jæja manni... jólin eru búin í Odense... ég er eiginlega alveg viss um það... hehe... Roskilde beibí!!!!!
Máni
December 30, 2005   11:10 PM PST
 
kannski..... finnst þetta samt af einhverjum ástæðum rosalega vanmetin plata
skotta
December 30, 2005   02:35 PM PST
 
ok kannski er X&Y ekki alveg jafn slæm og allir segja, en það er dáldið því frá að ég telji hana með bestu plötum ársins.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments