|
1. Ég skilaði verkefni á föstudaginn. Gleði og hamingja 2. Ég hitti Aldísina ásamt tveimur hressum snótum á föstudagskvöldið og drakk með þeim óhóflegt magn áfengis á Irish Pub áður en haldið var í miðbæ Óðinsvéa til að kanna stemmninguna á gelgjustaðnum Arkaden. Ég skemmti mér konunglega....minnir mig. 3. Ég var þunnur á laugardaginn, í fyrsta skipti í langan tíma. Saknaði þess ekki mjög mikið. 4. Björgvin Steinar og Katrín heimsóttu okkur á laugardaginn en þau eru einmitt búin að fjölga mannkyninu og átti það að gerast á mánudaginn. Bíð frekari frétta af þeim..... :::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
Ég var víst búinn að minnast á það að ég gæti MÖGULEGA KANNSKI farið með Stazy frá Ryslinge að sjá nýjustu myndina um þetta: ![]() Þess má geta að ég hef ekki lesið bækurnar eða séð eina ræmu um Harra Hasshaus..... enda sýnist mér þetta vera hálf freðið alltsaman. |
| Tinna systa November 18, 2005 09:38 AM PST Jeez...I´ll have what ever he's having...!!! | ||
| Leave a Comment: |