Sebastían Mánason
Kári bróðir
Ingi Björn í kjöpenhavn
Soffía
Kata
Hlynurinn
Sjafnar í U.S.A
Aldís Violet Daníel
Óli Steini
Finnur uberbloggari
Björgvin
BigCat Gylfi
Myrkur í máli
Þórunn Gréta
Ingvar stóri af Skúlum
Maggi Tóka
Óli frá Gústum
Lufsublogg Þóru
Sigga Hulda
Snjólfur
Bella
Bylgja B
Spunkhildur
Skotta
Urdur hin dramatíska
Koggz Máni
Magni

Gott stuff á netinu
Arthur
Fotbolti.net
Soccernet
Arsenal rúlar!
B2.is
hugi.is
Baggalútur
Mogginn
Myndsmiðjan
Óðinsvé
Skólinn
NBA
Jack D
Rathergood.com
Wimp.com


Musica

Bloodgroup
Muse
Allmusic.com
The Smiths
Jeff Buckley
Turin Brakes
Tom Waits
Jamiroquai
Norah Jones
Massive Attack
Tricky
Zero 7
Metalheadz(Goldie og co.)
Royksopp
Tribe called quest
Missy Elliot
Outkast
Deftones
Saybia
Tim Christensen
Placebo
HIM
Joy Division
Depeche Mode
My Dying Bride
Mew
Aphex Twin
Opeth
Dave Matthews Band
Cradle of Filth
Type O Negative
The Mars Volta
Chili Peppers



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Friday, November 11, 2005
Nágranni

Grídarlega mikilvægt próf hér á ferdinni....
 

You are Toadie Rebecchi!
Congratulations! You are Toadie Rebecchi! Despite having an insane family, you actually have turned out okay. You're witty, intelligent, and liked by many. Um, that's about it, really.


Take the Which Neighbour Are You? Quiz, hosted by Neighbours: The Perfect Blend.

Kemur upp úr krafsinu ad ef ég væri "Nágranni", væri ég thessi brádmyndarlegi, alls ekki pirrandi madur.....

Posted at 09:33 am by manijobba
3 Fönk  

Wednesday, November 09, 2005
Plata vikunnar

The Breeders - Last Splash



Lagið "No Aloha" er svo hroðalega flott og platan öll virkilega töff.

Posted at 08:08 pm by manijobba
Fönkaðu  

Monday, November 07, 2005
átakalaust

Átakalaus helgi liðin.... gærdagurinn fór í að læra enda stórt projekt í gangi sem þarf að vera klárt eftir 168 klukkustundir (næsta mánudag). Á laugardaginn vorum við feðgar bara tveir að hafa það huggulegt, ca. allir íslendingar í danmörku- þar á meðal kellinginn- að fara að sjá Sálina hans jóns míns á Vega í Kaupmannahöfn. En það var líka blast hjá gamla, því eftir að strákurinn var sofnaður tók ég fram tvo öllara og horfði á bíómyndir frá klukkan 21:00 til 02:30. Sá þá meðal annars myndina "Kids" sem er ennþá meiri vibbi en mig minnti, kannski er ég bara orðinn svona gamall....
Framundan er skóli, skóli og skóli.....já og skóli. Boy it´s fun to be me!!!! ;)

Þangað til næst....... ha det

Posted at 11:25 am by manijobba
Fönkaðu  

Friday, November 04, 2005
kýldur í magann!!

Ekki alveg, en kitlaður af Kára bróður...þannig að hér eru gagnslausar upplýsingar part 2.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1. Mennta mig
2. skoða eins mörg lönd og fjárhagur leyfir
3. Læra spænsku og finnsku
4. Eignast annað barn
5. Fara á a.m.k 10 stóra tónleika í viðbót
6.Fara á fótboltaleik eða tvo með Arsenal
7. Tífalda núverandi tónlistarsafn


Sjö hlutir sem ég get:
1. Hannað og kóðað efni fyrir veraldarvefinn
2. Spilað football manager þangað til ég man ekki mitt eigið nafn
3. Horft á scrubs og friends aftur og aftur og aftur.....
4. Bakað prýðilegt brauð
5. Hent peningum í ótrúlegustu vitleysu.
6. Hætt að reykja og drekka kaffi(!!!)
7. gert ekkert, með góðum árangri....

Sjö hlutir sem ég get alls ekki:
1. Hætt að éta sælgæti
2. Sparað peninga
3. Borðað sviðin eða úldin mat (betur þekkt sem íslenskur hátíðarmatur)
4. Gúdderað kántrí og línudans
5. Sagt nei
6. Þolað Sally Field eða horft á kvikmynd með henni í nokkru hlutverki
7. Haldið einbeitingu þegar ég þarf mest á því að halda

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið.
1. Húmor, að geta hlegið að hinni ýmsustu vitleysu er góður kostur
2. Einlægni,  konur sem þora að vera þær sjálfar og eru ekkert að rembast við að vera eitthvað meira eða betra en sú næsta
3. Fallegt vaxtarlag
4. Persónuleiki.....gríðarlega mikilvægur kostur hjá hverjum sem er.....
5. Þolinmæði.... gulls ígildi
6. Konur sem kunna að tjilla....sjaldgæft eintak, en geysilega heillandi kostur hjá þeim sem það kunna.
7.Ég held að það sé fátt þokkafyllra en vellyktandi kona.....

Sjö frægir kvennmenn sem heilla
1. Halle Berry
2. Sharon den Adel (Within Temptation)
3. Catherine Zeta-Jones
5. Salma Hayek
6. Amy White (Evanescence)
7. Meg White (White Stripes)

Sjö orð eða setningar sem að ég nota mikið:
1. Daaamn
2. Crap
3. Pis
4. Hvur djöfullinn!
6. Jebbsí pepsí
7. Nice

Sjö hlutir sem að ég sé einmitt núna:
1. IBM Thinkpad R40 labbinn minn
2. Hedfónin mín
3. Bókin "Avanceret XHTML"
4. Eldhúsvaskinn, kúfaðan af drasli sem ég hefði átt að vaska upp í staðinn fyrir að skrifa þetta
5. PC PRO tímarit
6. Reikninga....ichhhh
7. Tilboðsbækling frá Føtex

Hana....það búið. Held að Óli Steini og Ingi Björn hafi heldur ekkert betra að gera en að skella einum svona í bloggið hjá sér....


Posted at 01:20 am by manijobba
1 Fönk  

Sunday, October 30, 2005
Afmælisbarnið

Afmælisbarnið er snillingurinn hann sonur minn, Sebastían Freyr, sem er 4 ára í dag.
Honum finnst gaman að borða nammi, klifra, spila fótbolta, vakna klukkan 7 og horfa á Scooby Doobie Doooooooooo!!!!
Hann ætlar sér að verða lestarstjóri í framtíðinni. 
Sebastían á nokkrar fleygar setningar eins og:
"þú ert gamall og skrýtinn og ég elska þig" (sagt við undirritaðan)
"út gamli grís, ég er að pissa!" (aftur sagt við undirritaðan)
"jeg kan ikke li´tomater, de smager af lort" (mér finnst tómatar ekki góðir,það er kúkabragð af þeim).
"þetta er sko rosa flott lag" (eftir að hafa rifið af mér heddfóninn við lærdóm, hlustandi á 'Feeling oblivion 'með Turin Brakes)

Sebastían

Posted at 12:41 am by manijobba
2 Fönk  

Saturday, October 29, 2005
Plata vikunar

The temptations - Cloud 9

Lengi lifi funkið!!!!!!!!!!!!

Posted at 02:40 am by manijobba
Fönkaðu  

Monday, October 24, 2005
úhh nej

Djöf! Football manager 2006 er kominn út..... jæja, mér finnst hvort sem er hundleiðinlegt að mæta í skólann og sofa og borða.

Sjáumst síðar....mikið síðar 

 

Posted at 04:46 pm by manijobba
2 Fönk  

Sunday, October 23, 2005
Nýr bloggsnillingur

Mér sýnist á öllu að viðkomandi hafi haft blogg í langan tíma án minnar vitundar......synd. Kynni til sögunnar gamla vinkonu, afbragðs skáld, vel þenkjandi og svo er hún mikill húmoristi. Soffía Sveinsdóttir vessgú....

Posted at 06:50 pm by manijobba
1 Fönk  

Friday, October 21, 2005
þessa viku...

er ég blessunarlega í efterårsferie og geðheilsan þakkar dönum fyrir að finna uppá að halda tilefnislaust frí í miðjum oktober....
Fríið hefur farið prýðilega fram, náði á sunnudaginn að sýna, tjah.... mig langar að segja tilþrif... í markinu hjá Ísafold/B1913 sem er íslenska fótboltaliðið hérna í Odense og þeir spila í 3.deild að ég held. Niðurstaða: 9-3 fyrir okkur.
Spilaði póker á miðvikudaginn og náði sem aldrei fyrr að hafna í öðru sæti. Fór með Aldísi á myndina um Grimmsbræður með Heth Ledger og Matt Damon, hún er skítsæmileg afþreying... 2 tímar sem hefðu samt getað verið u.þ.b 26 og hálf mínúta- að slepptu efni sem enginn hafði gagn eða gaman að .

Horfði líka á Arsenal vs Sparta prag á mivikudaginn þarsem að Henry setti 2 glæsileg mörk á móti engu frá Spörturum. Annar ánægjuauki það kvöld var að Manchester gerði jafntefli við eitthvað úthverfa lið frá frakklandi. En Chelskí voru viðbjóður að vanda og unnu Betis alltof sannfærandi. Skemmtilegasti leikurinn var hinsvegar Schalke04 vs Fenerbache, 6 mörk og eitt hroðalegasta markvarðakikks sem ég hef séð.

Ég og frúin ákváðum að taka Lord of the rings maraþon í fríinu og ekki verða þær myndir nú leiðinlegri með tímanum....;) eigum bara þristinn eftir og bónus sófaefnið verður væntanlega fimmti þáttur í Lost,
seríu 2.   Good times.

og þannig líkur þessari eyðslu á vefplássi

 

Posted at 01:31 pm by manijobba
Fönkaðu  

Tuesday, October 18, 2005
Hver? Ég?

Mér var sagt í gær að ég væri orðljótur..... Fari það nú í rassgat

Posted at 08:40 am by manijobba
Fönkaðu  

Previous Page Next Page