Snilldar jólum að ljúka hér í Odense, styttri en nokkru sinni þarsem að við hjúin erum bæði farin að læra eins og mofo´s... próf í janúar og svoleiðis sjitt. Búið að vera alveg dásamlegt þrátt fyrir að maður hafi auðvitað saknað þeirra á klakanum, en sonur minn hin síkáti hélt uppi rífandi stemmningu á aðfangadag og setti að öllum líkindum einhverskonar met í pappírstætingum og sennilega mesta mildi að enginn skaðaðist í átökunum. Allt fór nú vel fram samt og ég er ekki frá því að ég hafi þyngst um nokkur grömm eftir þá heiftarlegu ofneyslu matvæla sem vill eiga sér stað á þessum tíma árs.
Ég er búinn að vera að hlusta á það sem mér fannst markverðast í tónlistinni á árinu og að sjálfsögðu verður settur upp, að hætti Rob Gordon, topp 10 listi yfir bestu plöturnar:
10. Coldplay - x&y mér er alveg sama hvað allir segja, þetta er barasta ljómandi plata hjá þeim.
9. Sigurrós - Takk Bravó er það eina sem mér dettur í hug og jú, takk sjálfir bara.
8. Anthony & the Johnsons- I am a bird now Snilldarband, snilldarplata
7. The White stripes- Get behind me satan Þau eru bara góð, alltaf
6. Opeth - Ghost reveries það allrabesta sem að svíar bjóða uppá
5. Mew - ..and the glass handed kites það besta sem að danir bjóða uppá
4. Kent - Du og jag döden það næsta besta frá svíum, snillingar!
3. Death Cab for cutie - Plans hrifin af þessu albúmi
2. Turing Brakes - Jackinabox Þessi plata kemst sennilega samt ekki inná aðra svipaða lista þarsem að gagnrýnendur trössjuðu hana....en ég er fan nr.1!
1. Kate Bush - Aeriel óvæntasta og þægilegasta uppákoma ársins
Langar líka að setja System of a down í heiðurssæti með Mesmerize plötuna, it´s just so darn good......