...and christmas is upon us
Blessuð jólin að koma eina ferðina enn og það er náttúrlega ekkert nema frábært... það er klassísk skemmtun að fara í búðarferðir undir það síðasta og sjá fólk nærri dauða en lífi af neyslubrjálæði. Hér var búið að versla flestar jólagjafir í lok nóvember:) Annars verða þessi jól öðruvísi og örugglega frekar undarleg þarsem að við verðum bara þrjú hérna í kotinu í danmörkinni yfir jólin en góðir foreldrar eru búnir að sjá fyrir að við þurfum ekki að borða flæskesteg og frikadellur í jólamat. Nei, takk... hér verður hangikjet, ORA baunir, laufabrauð og allt sem prýðir ízlendsk jól.
Hef annars verið að reyna að koma mér í jólaskap með að hlusta á rás 2 með hjálp tölvutækninnar og það hefur reynst bæði skemmtilegt og ekki síður fróðlegt...
Hef meðal annars lært að Ízlendingar eru búnir að finna sér nýtt "orð"... Man að þegar ég var að yfirgefa skerið var orðið "þokkalega" uppá sitt besta, meira að segja orðið veeel þreytt, en nú virðist orðið "klárlega" ætla að fá sömu útreið.
Lærði líka að Óli Palli er ennþá KLÁRLEGA besti útvarps dj sem ízlendingar eiga....heyrði nýtt lag með Mugison og Hjálmum sem er snilld og auðvitað allt hitt krappið sem gefið er út á klakanum fyrir jólin..... ekki allt krapp auðvitað en alltof stór %.
Ætla ekki að hafa fleiri orð um eitt né neitt......
Óska bara öllum gleðilegra jóla og allt það
