Wednesday, April 12, 2006
Posted at 08:57 pm by manijobba
Permalink
Saturday, February 04, 2006
Þá er það búið, nenni ekki og hef alls ekki tíma. Reikna heldur ekki með að ég nenni að byrja aftur í þetta skipti. Takk allir sem nenntu að lesa þetta rugl, sjáumst í næsta stríði.
Posted at 10:07 am by manijobba
Permalink
Friday, January 27, 2006
Hmmm, thad er thá svona sem ad andleysi og ritstífla lítur út í HTML formi....
Posted at 11:10 am by manijobba
Permalink
Tuesday, December 27, 2005
Snilldar jólum að ljúka hér í Odense, styttri en nokkru sinni þarsem að við hjúin erum bæði farin að læra eins og mofo´s... próf í janúar og svoleiðis sjitt. Búið að vera alveg dásamlegt þrátt fyrir að maður hafi auðvitað saknað þeirra á klakanum, en sonur minn hin síkáti hélt uppi rífandi stemmningu á aðfangadag og setti að öllum líkindum einhverskonar met í pappírstætingum og sennilega mesta mildi að enginn skaðaðist í átökunum. Allt fór nú vel fram samt og ég er ekki frá því að ég hafi þyngst um nokkur grömm eftir þá heiftarlegu ofneyslu matvæla sem vill eiga sér stað á þessum tíma árs.
Ég er búinn að vera að hlusta á það sem mér fannst markverðast í tónlistinni á árinu og að sjálfsögðu verður settur upp, að hætti Rob Gordon, topp 10 listi yfir bestu plöturnar:
10. Coldplay - x&y mér er alveg sama hvað allir segja, þetta er barasta ljómandi plata hjá þeim.
9. Sigurrós - Takk Bravó er það eina sem mér dettur í hug og jú, takk sjálfir bara.
8. Anthony & the Johnsons- I am a bird now Snilldarband, snilldarplata
7. The White stripes- Get behind me satan Þau eru bara góð, alltaf
6. Opeth - Ghost reveries það allrabesta sem að svíar bjóða uppá
5. Mew - ..and the glass handed kites það besta sem að danir bjóða uppá
4. Kent - Du og jag döden það næsta besta frá svíum, snillingar!
3. Death Cab for cutie - Plans hrifin af þessu albúmi
2. Turing Brakes - Jackinabox Þessi plata kemst sennilega samt ekki inná aðra svipaða lista þarsem að gagnrýnendur trössjuðu hana....en ég er fan nr.1!
1. Kate Bush - Aeriel óvæntasta og þægilegasta uppákoma ársins
Langar líka að setja System of a down í heiðurssæti með Mesmerize plötuna, it´s just so darn good......
Posted at 07:09 pm by manijobba
Permalink
Wednesday, December 21, 2005
...and christmas is upon us
Blessuð jólin að koma eina ferðina enn og það er náttúrlega ekkert nema frábært... það er klassísk skemmtun að fara í búðarferðir undir það síðasta og sjá fólk nærri dauða en lífi af neyslubrjálæði. Hér var búið að versla flestar jólagjafir í lok nóvember:) Annars verða þessi jól öðruvísi og örugglega frekar undarleg þarsem að við verðum bara þrjú hérna í kotinu í danmörkinni yfir jólin en góðir foreldrar eru búnir að sjá fyrir að við þurfum ekki að borða flæskesteg og frikadellur í jólamat. Nei, takk... hér verður hangikjet, ORA baunir, laufabrauð og allt sem prýðir ízlendsk jól.
Hef annars verið að reyna að koma mér í jólaskap með að hlusta á rás 2 með hjálp tölvutækninnar og það hefur reynst bæði skemmtilegt og ekki síður fróðlegt...
Hef meðal annars lært að Ízlendingar eru búnir að finna sér nýtt "orð"... Man að þegar ég var að yfirgefa skerið var orðið "þokkalega" uppá sitt besta, meira að segja orðið veeel þreytt, en nú virðist orðið "klárlega" ætla að fá sömu útreið.
Lærði líka að Óli Palli er ennþá KLÁRLEGA besti útvarps dj sem ízlendingar eiga....heyrði nýtt lag með Mugison og Hjálmum sem er snilld og auðvitað allt hitt krappið sem gefið er út á klakanum fyrir jólin..... ekki allt krapp auðvitað en alltof stór %.
Ætla ekki að hafa fleiri orð um eitt né neitt......
Óska bara öllum gleðilegra jóla og allt það

Posted at 06:59 pm by manijobba
Permalink
Wednesday, December 07, 2005
á þessum síðustu verstu...
Posted at 08:47 am by manijobba
Permalink
Wednesday, November 30, 2005
...um leid og ég nenni. Thid getid dundad ykkur vid thad á medan ad setja inn einkamála auglýsingar á tagbordid mitt.
Posted at 11:41 am by manijobba
Permalink
Monday, November 21, 2005
Death Cab For Cutie - Plans
Falleg popptónlist.....
Posted at 12:13 am by manijobba
Permalink
Thursday, November 17, 2005
Ég man þá dásemdar daga þegar ég elskaði NBA og þá sérstaklega Seattle SuperSonics.....
Þeir dagar eru farnir og í dag kannast ég lítillega við 2 leikmenn hjá þessu liði, ég er alveg búinn að missa af NBA lestinni............
Posted at 01:11 pm by manijobba
Permalink
Tuesday, November 15, 2005
Eftirfarandi hlutir áttu sér stað um helgina:
1. Ég skilaði verkefni á föstudaginn. Gleði og hamingja
2. Ég hitti Aldísina ásamt tveimur hressum snótum á föstudagskvöldið og drakk með þeim óhóflegt magn áfengis á Irish Pub áður en haldið var í miðbæ Óðinsvéa til að kanna stemmninguna á gelgjustaðnum Arkaden. Ég skemmti mér konunglega....minnir mig.
3. Ég var þunnur á laugardaginn, í fyrsta skipti í langan tíma. Saknaði þess ekki mjög mikið.
4. Björgvin Steinar og Katrín heimsóttu okkur á laugardaginn en þau eru einmitt búin að fjölga mannkyninu og átti það að gerast á mánudaginn. Bíð frekari frétta af þeim.....
:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
Ég var víst búinn að minnast á það að ég gæti MÖGULEGA KANNSKI farið með Stazy frá Ryslinge að sjá nýjustu myndina um þetta:
Þess má geta að ég hef ekki lesið bækurnar eða séð eina ræmu um Harra Hasshaus..... enda sýnist mér þetta vera hálf freðið alltsaman.
Posted at 08:14 pm by manijobba
Permalink